Matreiðslunámskeið á Sólheimum

Sæl veriði,
Nú líður að matreiðslunámskeiðinu okkar á Sólheimum sem haldið verður sunnudaginn 9. ágúst nk. Eins og minnst var á er svokallaður lífrænn dagur á Sólheimum á laugardeginum og mikið um að vera, sjá nánar á solheimar.is. Við höfum húsin alla helgina og hugmyndin er að mæta á laugardeginum og jafnvel borða saman um kvöldið eða gera eitthvað skemmtilegt. Námskeiðið myndi byrja kl. 10:30 á sunnudeginum og vera fram eftir degi.

Það er Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari og einn af eigendum Á næstu grösum (veitingastaðir á Laugarvegi og í Kringlunni) sem mun sjá um námskeiðið. Eins og þið munið stóð til að Beggi og Pacas myndu sjá um dæmið en Gay Pride er einmitt þessa helgi og eru þeir því uppteknir en við vorum svo heppin að fá Dóru til að taka þetta að sér fyrir okkur.
Við myndum viljum óska eftir að þeir sem voru búnir að tilkynna þátttöku láti vita sem fyrst um fjölda frá hverri fjölskyldu, hvenær þið hyggist koma o.þ.h.

Annars vonumst við til að sjá sem flesta.

f.h. stjórnar

Steingrímur Ægisson 


PEG-PAL

Biomarin í USA er að prófa PEG-PAL eins og þið vitið mörg hver. Það eru komnar niður stöður úr fyrsta fasa þar sem PEG-PAL er prófað á mönnum. Sjá má árangurinn á línuritinu til hliðar og svo á heima síðu Biomarin. Út frá þessu virðist það vera einu sinni í viku sem þurfi að sprauta sig með PEG-PAL plasmanu.

Campbell súpur

 

Ég uppgötvaði nýlega Campbell súpurnar ( sem þið eruð kannski löngu búin að uppgötva :) . Það eru til hinar ýmsu gerðir af þessum súpum s.s Cream of mushroom, Cream of tomato, Cream of asparagus ofrv. Í sveppa súpunni er 1,06 phe í einu grammi af óþynntri súpu (condensed) en 0,56 phe í gr ef þynnt er með vatni. Ég fékk þessar upplýsingar á ameríska póstlistanum. Ég hef ekki svona nákvæmar upplýsingar um hinar súpurnar en í aspasúpunni er 1 gr prótein í 1/2 bolla af óþynntri súpu og 3 gr prótein í 1 bolla af tómatasúpunni. Mér fannst þetta skemmtileg viðbót í PKU fæðið og hægt er að nota þessar súpur á ýmsa vegu s.s. í bökur, heitarétti, pastarétti o.s.frv.

Esther (esther@pku.is)