E.S.PKU ráðstefna í Kaupmannahöfn

Ráðstefna samtaka PKU félaga í Evrópu (E.S.PKU) verður haldin í Kaupmannahöfn 21-24. október næstkomandi. Skráning á ráðstefnuna er hafin á heimasíðu samtakanna www.espku.org.

PKU félagið á Íslandi styrkir félagsmenn til ráðstefnunnar. Hægt er að hafa samband við stjórn félagsins varðandi styrki.

Styrkur frá SORPU

Þann 22. desember s.l. fékk PKU félagið  200 þús. kr. styrk frá SORPU. Sú hefð hefur skapast hjá SORPU að leggja góðu málefni lið með fjárstyrk í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort. A þessu sinni ákvað SORPA að styrkja PKU-félagið um 200 þús. kr. og þakkar félagið SORPU kærlega fyrir styrkinn. Styrkurinn mun verða notaður til útgáfumála en á síðasta aðalfundi í október sl. var ákveðið að gefa út matreiðslubók sem hefur verið í vinnslu í nokkurn tíma. Stefnt er að því a stjórn félagsins muni hittast fljótlega á nýju ári og skipuleggja útgáfu bókarinnar.

Aðalfundur PKU félagsins – 17. október

Aðalfundur PKU-félagsins á Íslandi verður haldinn í húsi Umhyggju á Háaleitisbraut 13 þann 17. október nk. Verðum í fundarsal á 1. hæð. Við ætlum að mæta kl. 11:30. Hádegismatur í boði félagsins (réttir frá veitingastaðnum Á næstu grösum) fyrir fundinn. Reiknum með að byrja fundinn um kl. 12:30.

1. Kolbeinn læknir ætlar að kynna hugmyndir sínar um eftirlit í framtíðinni, m.a. nánari athugun á blóðprufum o.fl.

2. Sjúkratrygging vinnur að endurskoðun á fyrirkomulagi við innflutning og dreifingu á sérfæði og amínósýrublöndu. Stjórn félagsins hefur átt fund með fulltrúum Sjúkratryggingar þar sem við settum fram sjónarmið okkar um að nauðsynlegt væri að tryggja úrval og bestu möguleika á aðgengi sérfæðis. Vildum kynna þetta og ræða nánar.

3. Hefðbundin aðalfundarstörf. Farið yfir ársreikning, atburði ársins, næsta ár, kosning stjórnar o.fl.

Reiknum með að ljúka fundinum um kl. 16:00.

Matreiðslunámskeið

Dóra Svavarsdóttir hefur boðist til að halda annað námskeið fyrir okkur sunnudaginn 18. október kl. 11:00. Það yrði haldið á veitingastaðnum Á næstu grösum í Kringlunni. Borðað yrði í framhaldi um kl. 13:00 þar. Hvetjum sérstaklega alla sem ekki voru á Sólheimum í sumar til að koma. Annars eru allir velkomnir.

Ferðastyrkur að upphæð 20 þús. kr. á fjölskyldu fyrir þá sem búa úti á landi eins og tvö sl. ár.

herbal viagra forums Buy Viagra Online
snorting viagra health