1.gr.
Félagið heitir : PKU félagið á Íslandi
Undirtitill: Félag um arfgenga efnaskiptagalla.
Heimili þess er í Reykjavík.
2.gr.
Félagar geta orðið lögráða einstaklingar með PKU eða skylda efnaskiptagalla, foreldrar þeirra, ættingjar og annað áhugafólk um velferð þeirra.
3.gr.
Markmið félagsins eru :
Að stuðla að bestu heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með PKU eða skylda efnaskiptagalla.
Að gæta hagsmuna einstaklinga með PKU eða skylda efnaskiptagalla og foreldra þeirra.
Að vera vettvangur fyrir gagnkvæman stuðning fjölskyldnanna.
Að fylgjast með nýjungum í rannsóknum og meðferð á PKU og skyldum efnaskiptagöllum.
Að miðla upplýsingum og fræðslu um PKU og skylda efnaskiptasjúkdóma.
Að tengjast PKU félögum erlendis.
4.gr.
Aðalfundur kýs þriggja manna stjórn og tvo varamenn þeirra.
Stjórnin skiptir með sér verkum.
Þrír af hverjum fimm stjórnendum skulu vera foreldrar og/eða lögráða einstaklingar með PKU eða skylda efnaskiptagalla.
5.gr.
Aðalfundur skal haldinn í október ár hvert.
