Styrkur frá SORPU

Þann 22. desember s.l. fékk PKU félagið  200 þús. kr. styrk frá SORPU. Sú hefð hefur skapast hjá SORPU að leggja góðu málefni lið með fjárstyrk í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort. A þessu sinni ákvað SORPA að styrkja PKU-félagið um 200 þús. kr. og þakkar félagið SORPU kærlega fyrir styrkinn. Styrkurinn mun verða notaður til útgáfumála en á síðasta aðalfundi í október sl. var ákveðið að gefa út matreiðslubók sem hefur verið í vinnslu í nokkurn tíma. Stefnt er að því a stjórn félagsins muni hittast fljótlega á nýju ári og skipuleggja útgáfu bókarinnar.

Post a Comment