Matreiðslunámskeið á Sólheimum

Sæl veriði,
Nú líður að matreiðslunámskeiðinu okkar á Sólheimum sem haldið verður sunnudaginn 9. ágúst nk. Eins og minnst var á er svokallaður lífrænn dagur á Sólheimum á laugardeginum og mikið um að vera, sjá nánar á solheimar.is. Við höfum húsin alla helgina og hugmyndin er að mæta á laugardeginum og jafnvel borða saman um kvöldið eða gera eitthvað skemmtilegt. Námskeiðið myndi byrja kl. 10:30 á sunnudeginum og vera fram eftir degi.

Það er Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari og einn af eigendum Á næstu grösum (veitingastaðir á Laugarvegi og í Kringlunni) sem mun sjá um námskeiðið. Eins og þið munið stóð til að Beggi og Pacas myndu sjá um dæmið en Gay Pride er einmitt þessa helgi og eru þeir því uppteknir en við vorum svo heppin að fá Dóru til að taka þetta að sér fyrir okkur.
Við myndum viljum óska eftir að þeir sem voru búnir að tilkynna þátttöku láti vita sem fyrst um fjölda frá hverri fjölskyldu, hvenær þið hyggist koma o.þ.h.

Annars vonumst við til að sjá sem flesta.

f.h. stjórnar

Steingrímur Ægisson 


2 Comment(s)

  1. Takk fyrir snilldarnámskeið :-)

    Jóna | Aug 10, 2009 | Reply

  2. Takk sömuleiðis. Þetta var alveg frábært. Endilega sendið mér myndir sem þið tókuð á námskeiðinu.

    Esther | Aug 10, 2009 | Reply

Post a Comment