Eldfjallabollur frá Sibbu

Kæru allir í PKU landi, Gleðilegan Bolludag !
Ekki reyndist mér auðvelt hér  áður fyrr að gera góðar vatnsdeigs bolludagsbollur án eggja, en nú orðið eru vöfflur  að leysa vandann með sóma. Ég geri bara samloku með tveimur vöfflulaufum samföstum, set fyrst venjulegt “álegg” eins og á venjulega bollu þ.e. sultu , þeyttan rjóma og smá bráðnað súkkulaði á toppinn þá lítur vafflan út eins og flott eldfjall þar sem hún situr upp á endann þegar búið er að gera úr henni samloku og skreyta mjóa endann  ;-) Smá sérhönnun er allt sem þarf !
Ég bý til Himneskar vöfflur  ( Heavenly waffles ) uppskrift frá USA :
Uppskrift gerir 4-5 vöfflur heilar ( það gerir helling af eldfjallabollum):
 
Loprofin hveiti 100 mg
1 tsk lyftiduft
1 kúffull tsk egg replacer
1 msk olía
100 ml pku dryk og 100 ml Sprite blandað saman ( Sprite gerir þær bragðgóðar og stökkar ” crisp. Engan annan sykur þarmeð )
1 tsk vanilludropar
 Hræra svo öllu saman með písk.
“Álegg”
sulta ( einhver berjasulta, eftir smekk)
Þeyttur rjómi 45g ( 50 phe)
25g odense  dökkir súkkulaðidropar ( bræddir) til að skreyta ” vöfflubollurnar”  ( 50 phe)
Þetta magn af rjóma ætti að duga vel á 4-5 bollur og súkkulaðið líka. Þá gerir hver eldfjallabolla ekki meira en 20 phe stykkið.
Þið gerið ykkar eigin útreikning eftir smekk á rjómamagni, súkkulaðimagni og leyfðum fenum.
Sibba

Post a Comment