Rússnesk rauðrófusúpa – Borssjtj

Úr bókinni mat med mindre protein
Fyrir 4

½ laukur
320g ferskar rauðrófur
80g gulrætur
120g hvítkál
2 msk olía eða smjör
1L vatn
1/2 grænmetisteningur (5g) (25) (prótein ca11g/100g t.d. Knorr)
1 lárviðarlauf
2-3 tsk hvítvínsedik
örlítið jurtasalt
50g sýrður rjómi (36%) (50)

Skerið laukinn í bita ásamt hvítkálinu. Rífið gulrótina á rifjjárni. Rífið rauðbeðurnar eða skerið í stafi. Steikið grænmetið létt í olíunni eða smjörinu. Bætið vatninu og teningnum í pottinn ásamt lárviðarlaufinu. Sjóðið í um 30 min (bætið við vatni eftir þörfum). Bætið að lokum hvítvínsediki og jurtasalti útí.

Berið fram með einni góðri tsk af sýrðum rjóma á disk.

Í uppskrift: Ca 75 Phe
Í skammti: Ca 20 Phe

Post a Comment