Mjög góðar hveitikökur
By bryndiseva on Jun 1, 2007 in Brauð, Uppskriftir
Frá Stínu ömmu á Bolungarvík
?? stk
2-3 meðalstórar soðnar kartöflur (ca 200g) (200)
100 gr smjörlíki
1 msk sykur
500 gr próteinsnautt hveiti
4-5 tsk lyftiduft
400ml mysa (80) meira ef þarf
1 tsk egg-replacer
1 msk vatn
Sjóðið kartöflur, afhýðið og stappið þær heitar með gaffli. Blandið smjörlíki og sykri saman við. Blandið saman próteinsnauðu hveiti og lyftidufti og setjið úti ásamt mysu. Blandið saman egg-replacer og vatni og hellið því úti deigið. Best er að hafa deigið sem blautast því þá verða kökurnar mýkri. Fletjið út og notið próteinskert hveiti undir deigið og á kökekeflið ef þarf. Skerið út undan diski (t.d. desert diski) eða skiptið deiginu í parta með kleinuhjóli. Það er ekki gott að hafa kökurnar mjög stórar. Stingið í (pikkið) kökurnar með gaffli eins og við soðkökurnar. Bakið við 130 gráður í ofni og látið kökurnar kólna undir hlemmi.
Í uppskrift: ca 280 Phe
Í köku: ca ?? Phe
Hugmynd: Gott með allskyns áleggi

Post a Comment