Indverskt gulrótarmeðlæti
By bryndiseva on Jun 1, 2007 in Meðlæti, Uppskriftir
Fyrir 5
500 g gulrætur
1/2 dl majones (50g) (Euroshopper majones 0,5g prót/100g) (13)
Örlítið salt
75g hakkaður ananas
3/4 dl rúsínur
1 tsk karrý
1-2 hvítlauksrif
Þvoið gulræturnar eða skrælið ef þess þarf. Skerið gulræturnar í strimla og mýkið aðeins með því að sjóða í örlitla stund. Kælið. Hrærið saman majonesi, salti, ananas, rúsínum, karríi og hvítlauk. Bætið við gulrótunum.
Í uppskrift: ca 13 Phe
Í skammti: ca < 5 Phe
* Hefðbundin majones yfirleitt 2g protein/100g=100 Phe
Hugmynd: Hér má einnig nota góða olíu í staðin fyrir majones sem gefur þá aðeins annað bragð

Hæ Ester
Er hægt að láta fréttina koma alltaf efst (td í hálfan mánuð eitthvað svoleiðis eftir að hún er birt) svo nýjar uppskriftirnar yfirgnæfi ekki mikilvægar fréttir?
Bkv, BEB
BEB | Jun 1, 2007 | Reply
Jú, ekkert mál. Er búin að græja það.
Esther | Jun 1, 2007 | Reply