Tortilla

Frá Erlu
stk???

70 g próteinsnautt hveiti (Semper)
10 g Husk (8)
1/2 tsk egg replacer (Loprofin)
1/4 tsk salt
3/4 dl (75 ml) heitt vatn (næstum sjóðandi)
3/4 msk olía


Blandið hveiti, husk, egg replacer og salti saman. Bætið olíu og heitu vatni úti og hnoðið deigið þar til það er samfellt. Fletjið það síðan út mjög þunnt þar til að er á stærð við pönnu heimilisins. Bakið á heitri pönnunni og snúið við nokkrum sinnum. Kökurnar eiga að hafa dröfnótt útlit ekki stóra brennda bletti. Hafið matardisk inni í plastpoka á borðinu meðan steikt er og leggið steiktar kökurnar á diskinn með bökunarpappír á milli. Passið að hafa pokann alveg lokaðan þess á milli svo gufan sleppi ekki út. Þetta kemur í veg fyrir að kökurnar harðni.
Í uppskrift: ca 10 Phe

Hugmyndir að fyllingu í eina tortillu:
Milda salsasósu í rönd í miðjuna á tortillunni (<1g/100g) (15g) (6)
Kínakál eða jöklasalat niðurskorið
Gúrkubitar
Tómatbitar
Maís (35g) (50)
Paprika í öllum litum
Púrrulaukur
Grænar ólífur
eða hvað annað grænmeti sem ykkur finnst gott.
Sumir setja svolítið af Picnic kartöflustráum (10g) (35) (100g = ca 350 Phe) eða muldar kartöfluflögur með (<7,5g próten/100g) (100g = ca 350 Phe).

Fylling: ca 90 Phe

Tortillakökunum er svo rúllað upp, brotið uppá endann á þeim og þær borðaðar af bestu lyst.

Frá Erlu: Kristþór og Gísli vilja þetta helst inn í tortillurnar:
Ferskt grænmeti (gúrku, rauða papriku, kínakál, púrrulauk)
Picnic kartöflustrá (35)
Milda salsasósu
Dippas ostasósu 15g (15)
Smá sýrðan rjóma (18%) (15g)(20)

Fylling: ca 75 Phe

Hugmynd: Það er hægt að baka fleiri tortillakökur og frysta. Tvöföld uppskrift er til dæmis þægilegt magn að vinna með. Tortillakökurnar geymast í plastpoka í kæli í 1-2 sólarhringa.
Tortillakökurnar er einnig hægt að nota með indverskum mat svo sem chapati.

1 Comment(s)

  1. Hæ hæ
    Ég hef sett hveiti í skál og smá krydd og svo hræri ég köldu vatni saman við þar til blandan er mjög þunn og set í ausu á pönnu og steiki báðum megin eins og pönnukökur…fínt og fljótlegt!

    Helga | Jan 5, 2010 | Reply

Post a Comment