Súkkulaðikaka

Frá Jónu og Halldóri

Kaka:
125 g smjörlíki
125 g sykur
20 g egg-replacer

200 g próteinsnautt hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
20 g kakómalt (O´boy eða Nesquick) (50)
1 tsk neskaffiduft
1/4 tsk salt
1 tsk vanilludropar
1 dl vatn
1/2 dl PKU-drink (Loprofin) (6)

Súkkulaðikrem
175 g flórsykur
1 tsk egg-replacer
10g kakómalt (nesquick) (25)
1/2 msk PKU-drink (Loprofin)
1/4 tsk Kötlu rommdropar (1/2 tsk ef notaðir eru Rayner´s dropar)
1 msk svart kaffi
1/2 tsk vanilludropar
15g bráðið smjörlíki

Lint smjörlíki og sykur er þeytt vel saman. Síðan er eggjalíki bætt útí. Bætið síðan öðrum hráefnum og vökva útí til skiptis og hrærið á milli. Setjið í hálfa ofnsúffu eða tvö hringlótt tertumót. Bakið við 200°C í 20 – 25 mín.

Hrærið saman öllu sem á að fara í kremið saman þannig að það blandist vel. Setjið kremið ofaná súkkulaðikökuna

Í uppskrift: ca 70 Phe
Í 1/8 af tveggja botna köku: ca 10 Phe

5 Comment(s)

  1. Var að baka þessa súkkulaðiköku. Gerði 12 möffins. Mér finnst húyn alveg ofsalega bragðgóð. Ég var reyndar að velta fyrir mér
    afhverju er gefið upp 1 dl vatn og svo neðar 80 gr. vatn. Ég setti ekki allt þetta vatnsmagn, bara rúmlega deselítra.

    Esther | Jul 15, 2007 | Reply

  2. Hæ hæ
    Ég er að velta fyrir mér hvert ég á að senda uppskrift eða á hvaða netfang. Var að baka þetta fína Chiabatta ítalskt brauð og er meira að segja með mynd af því. Mjög mjúkt og fínt og vil endilega koma því til skila til ykkar hinna…

    kv. Helga Svandís
    Bolungarvík

    Helga Svandís | Jul 18, 2007 | Reply

  3. Hæ, þú getur bæði sent á mig esther.gudmundsdottir@gmail.com eða esther@pku.is eða Bryndísi Evu sem er að gera matreiðslubókina fyrir okkur beb@tobe.is. Endilega sendu okkur þessa uppskrift með mynd og við skellum henni inn um hæl:)
    kv.
    Esther

    Esther | Jul 19, 2007 | Reply

  4. Sæl Ester
    Kíki á þetta með kökuna og tala við Heiðu. Ef hún var góð svona er kannski nóg að hafa 1 dl vatn. Uppskriftin a.m.k. pínu skrýtin svona! Takk fyrir að benda mér á það. Bestu kveðjur, Bryndís Eva

    BEB | Jul 27, 2007 | Reply

  5. Sæl Helga

    Endilega senda Chiabatta brauðið og gjarnan með mynd. Frábært að fá gott brauð inn. Þurfum endilega að bæta fleiri uppskriftum við þann lið.
    Bestu kveðjur, Bryndís Eva

    BEB | Jul 27, 2007 | Reply

Post a Comment