Rauða–kakan

Frá Erlu Einarsdóttur

Kaka:
225 g próteinsnautt hveiti
110 g smjörlíki
110 g sykur
1 tsk lyftiduft
2 tsk egg-replacer
150 ml vatn
1 tsk vanilludropar
nokkrir dropar rauður matarlitur

Krem:
200 g flórsykur
2 – 3 msk appelsínusafi

Kökuskraut úr marglitum sykri

Hrærið öllu saman sem á að fara í kökuna í hrærivél þar til allt hefur blandast vel. Ekki hræra of lengi því þá verður kakan seig. Setjið deigið í hringlaga form og bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Blandið saman flórsykri og appelsínusafa. (Hægt er að nota meira af safa, allt eftir því hvað kremið á að vera þunnt eða þykkt). Setjið kremið á kökuna og skreytið hana með kökuskrauti.

Í uppskrift: ca 0 Phe
Í 1/8 af köku: ca 0 Phe

1 Comment(s)

  1. Vinkona mín bakaði þessa köku fyrir Hrafnkel Ara í gær og hún er rosalega góð. Krakkarnir hámuðu hana í sig:)
    Esther

    Esther | Sep 4, 2009 | Reply

Post a Comment