Pylsur

Frá Höllu

10 stk

190 gr próteinskert brauð
60 gr  gulrætur
125 gr kartöflur (125)
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk salt
1 tsk edik
¼ tsk paprikuduft
¼ bolli tómatsósa (50g)
1 msk egg replacer (Loprofin)
3 dropar rauður matarlitur
3 dropar grænn matarlitur

(magn?) próteinsnautt hveiti
2 msk matarolía

Sjóðið kartöflur og gulrætur í potti, látið vatnið renna af og maukið. Skerið brauðið í strimla eða teninga og setjið í skál. Blandið öðrum hráefnum saman við og myljið saman í höndunum í nokkurn tíma. Setjið svo saman við smá og smá af próteinsnauðu hveiti þar til að deigið festist ekki við hendurnar eða hægt að móta kúlur.
Vigtið deigið og deilið því í 10 jafnstóra hluta. Rúllið hvern bita í pylsuform og steikjið á pönnu við vægan hita til að húða hverja hlið pylsunnar. Pylsurnar má svo frysta.

Í uppskrift: ca 125 mg Phe
Í pylsu: ca 15 mg Phe

Hugmynd:  Borið fram eins og venjulegar pylsur í pylsubrauði (sjá uppskrift bls) með tómatsósu, steiktum lauk og sinnepi eða með próteinskertri kartöflustöppu

2 Comment(s)

  1. Góð uppskrift. Gott að bæta við smá barbecue sósu fyrir meira bragð. Fínt bæði í pylsur og hamborgara sem er flott á grillið. Smá föndur við að steikja pylsurnar svo þær fái húð allan hringinn en það er þess virði. Ekkert mál að gera slatta og frysta.

    Erla | Aug 20, 2009 | Reply

  2. Hæ hæ
    Ég hef líka gert pylsur úr soðnum kartöflum þar sem ég stappa þær (eða ríf í rifjárni), krydda þær með season all og set tómatsósu út í (c.a. 35 gr á móti 140 gr. af kart.) og c.a. 35 gr af hveiti. Hræri þetta samam og rúlla út pylsur, steiki á pönnu í olíu. Mjög einfalt og góðar, en meira phe í þeim heldur en í hinum fyrir ofan…
    kv. HSH

    Helga | Jan 5, 2010 | Reply

Post a Comment