Páskabollur
By Esther Ruth on Apr 9, 2007 in Kökur, Uppskriftir
Fyrir 8
40 g sykur
180 ml volgt vatn
250 g próteinsnautt hveiti
½ tsk salt
1 ½ tsk olía
2 tsk þurrger (60)
2 tsk allrahanda krydd (15)
100 g þurrkaðir ávextir (60)
50 g flórsykur
50 ml vatn
Próteinsnautt hveiti
Flórsykur og vatn í glassúr
Leysið sykurinn upp í volgu vatni. Blandið hveiti, salti og olíu saman og hrærið síðan útí geri, kryddi og þurrkuðum ávöxtum. Blandið saman flórsykri og vatni. Gerið holu í mitt deigið og hrærið blöndunni saman við, lítið í einu. Blandið vel þar til úr verður þykkt og mjúkt deig og hafið ekki áhyggjur þó ykkur finnist deigið of lint. Látið hefa sig í 10 mínútur.
Smyrjið bökunarplötu og setjið örlítið af hveiti á hendurnar. Takið kúfulla matskeið af deiginu og veltið milli handanna og mótið bollur. Munið að setja hveiti á hendurnar fyrir hverja bollu. Raðið bollunum á smurðu bökunnarplötuna og látið lyfta sér, þar til bollurnar hafa tvöfaldað stærð sína. Klippið kross með skærum í bollurnar og bakið við 220C° í ca. 25 mínútur eða þar til bollurnar eru brúnar. Búið til glassúr með því að setja flórsykur og vatn á pönnu og sjóðið þar til þetat þykknar dálítið. Penslið bollurnar með bráðinni um leið og þær eru teknar úr ofninum
Látið kólna á grind
Í uppskrift: ca 135 Phe
Í bollu: ca 17 Phe

Post a Comment