Kínversk grænmetissósa
By Esther Ruth on Apr 9, 2007 in Sósur, Uppskriftir
Frá Erlu
Fyrir 4
80 g sveppir
80 g gulrót
2 msk olía
120 g sellerístilkar
100 g kínakál
2 dl vatn
¼ lítill ten (2g) grænmetiskraftur (prótein ca 11g/100g t.d. Knorr) (10) (eða vatn og grænmeti soðið saman til að búa til kraft)
1 dl ananassafi
2 msk vatn
1 msk maizenamjöl (maissterkja prótein í 100g = 0.3)
60 g græn paprika
60 g rauð paprika
160 g agúrka
¼ tsk engiferduft
¼ tsk salt
1 tsk sojasósa (<2,5g prótein/100g) (10)
2 ananashringir
Skerið grænmetið í skífur eða strimla. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppi og gulrót í olíunni. Blandið selleríistilkum og kínakáli útí og látið malla smá stund. Blandið útí vatni og grænmetiskrafti ásamt ananassafa. Látið krauma í nokkrar mínútur þar til grænmetið er “soðið” . Hrærið maisenamjöl með örlitlu vatni og jafnið réttinn með maisena.
Gúrku og papriku er blandað út í og látið krauma í 1 – 2 mínútur. Kryddið með engifer, salti og sojasósu og blandið að lokum ananasinum útí.
Í uppskrift: ca 20 Phe
Í skammti: ca 5 Phe
Hugmynd: Gott með próteinskertu pasta, -hrísgrjónum eða -ristuðu brauði

Post a Comment