Gulrótarsúpa með döðlum og karrí
By Esther Ruth on Apr 9, 2007 in Aðalréttir, Uppskriftir
Fyrir 4
2 msk ólífuolía
2 hvítlauksrif
1 laukur
2 sellerístönglar
1 tsk engiferduft eða 1 msk ferskt rifið engifer (miklu betra)
8 dl vatn
10 g kjúklingakraftur (75) (prótein ca 16g/100g)
400 g gulrætur
1 tsk karrý (Pottagaldra eða annað gott)
1 tsk cumin
1/2 tsk svartur pipar
1 dl döðlur (75g) (38)
1 msk sítrónusafi (ef vill)
60 ml rjómi (75)
Hitið olíuna í potti. Merjið hvítlauk, saxið lauk og sellerí og bætið útí ásamt rifnu engiferi. Hitið í 3-4 mínútur í olíunni og hrærið vel. Svo er talað um að taka pott af hellu og strá hveiti yfir innihaldið, hita í tvær mínutur til viðbótar og hræra vel, en ég setti ekkert hveiti né annað þykkiefni, alveg óþarfi, bara minna vatn)
Hellið nú kjúklingasoði í mjórri bunu út í súpuna og hrærið vel.
Rífið gulræturnar, bætið útí súpuna ásamt karrí, cumindufti og pipar og hleypið upp suðu. Lækkið hitann og látið súpuna malla í tíu mínútur.
Bætið söxuðum döðlum út í og látið malla áfram í fimm mínútur.
Hellið súpunni í matkvörn og maukið. Hellið aftur í pottinn og hitið. Bætið sítrónusafa saman við.
Ausið súpunni á diska og setjið þeyttan rjóma á hvern disk. Búið til mynstur með gaffli.
Í uppskrift: ca 190 mg Phe
Í skammti: ca 45 mg Phe

Þessi er stundum elduð hérna í Grafarholtinu og þá borðum við öll sama matinn
Þetta er mjög góð súpa.
Jóna K. | Aug 24, 2007 | Reply