Grænmetissúpa með saffran

Fyrir 2

1 laukur
1 rauð paprika
2 gulrætur
1/2 lítil rófa
1 lítill biti sellerírót (50g) (19)
5 dl vatn
1/3 teningur fiskikraftur (3g) (20)
½ poki saffran (ca ¼ tsk)
Smá cayennepipar

2 msk rjómi (30g) (35)
Graslaukur

Skerið allt grænmetið niður í litla bita. Látið grænmetið sjóða í kraftinum og kryddunum í 10 mínútur eða þar til grænmeti er farið að linast. Bætið þá rjómanum í og klippið graslaukinn yfir.

Borið fram með grófu próteinskertu brauði og smjöri.

Í uppskrift: ca 99 mg Phe
Í skammti: ca 50 mg Phe

Post a Comment