Blómkálssúpa með sætum kartöflum
By Esther Ruth on Apr 9, 2007 in Aðalréttir, Uppskriftir
Fyrir 5
40g blaðlaukur
2 hvítlauksrif
200g sætar kartöflur
2 msk ólífuolía
250g blómkál
1 l vatn
fersk steinselja
salt
hvítur pipar
Skerið blaðlauk og hvítlauk smátt og sætu kartöflurnar í litla bita. Hitið olíuna í potti og steikið blaðlaukinn, hvítlaukinn og sætu kartöflurnar létt. Bætið útí helmingnum af vatninu og látið suðu koma upp. Setjið blómkálið útí og sjóðið í 10 – 15 mínútur. Mixið súpuna í pottinum með töfrasprota eða hellið súðunni í mixara og mixið þannig að hún verði “slétt”. Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið útí afganginum af vatninu og látið suðuna koma upp á nýjan leik. Smakkið til með salti, pipar og ríflega af steinselju.
Í uppskrift: ca 0 mg Phe
Í skammti: ca 0 mg Phe


Þessi er algjört æði. Gísli Felix eldar hana reglulega fyrir okkur öll og stundum þegar við bjóðum fjölskyldunni í mat. Mæli með henni.
Erla | Aug 20, 2009 | Reply